Skólareglur
Reglur um mætingar og verkefnaskil
Síðast breytt: 17. ágúst 2010
- Nemendur skulu stunda námið af kostgæfni og skila verkefnum á réttum tíma.
- Nemendum í reglulegu námi ber að mæta í allar fastar kennslustundir samkvæmt stundatöflu og verkefnatíma eftir þörfum. Fylgst verður vel með mætingu og verkefnaskilum og nemendur krafðir skýringa á lélegri ástundun.
- Kennarar skrá viðveru nemenda í fastar kennslustundir.
- Séu nemendur fjarverandi úr skóla gilda ákveðnar reglur um hvernig taka skal á slíkum fjarvistum eftir því hver ástæða fjarvistanna er. Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans. Nauðsynlegt er að foreldrar eða forráðamenn tilkynni veikindi nemenda yngri en 18 ára. Læknisvottorði skal skila inn til skrifstofu ef veikindi vara lengur en tvo daga.
- Sé mætingu og verkefnaskilum nemenda ábótavant ræðir kennari við nemandann, reynir að fá hann til að bæta sig og skráir stöðuna jafnframt í athugasemdir í Innu. Batni staða nemandans ekki ræðir umsjónarkennari við nemandann og foreldra hans ef hann er yngri en 18 ára og reynir að grafast fyrir um það hvers vegna hann stundar ekki námið eins og til er ætlast. Brjóti nemandi reglur þessar ítrekað getur hann átt á hættu að vera vísað úr skóla. Eftirfarandi ferli fer í gang við ítrekuð brot:
-
- Nemandi og forráðamenn hans ef hann er yngri en 18 ára fær skriflega áminningu og er boðaður á fund skólastjórnenda.
- Á fundinum er farið yfir stöðu nemandans og reynt að grafast fyrir um ástæður slæmrar stöðu og hvort hægt er að veita nemandanum aukna aðstoð eða stuðning í náminu.
- Framhaldið er rætt og nemandanum gerð grein fyrir því að ef hann bætir sig á viðkomandi önn sé ekki fleiri aðgerða þörf. Verði staðan áfram slæm til enda annarinnar er nemandinn tekinn inn í skólann á næstu önn á skilyrðum og gert við hann skriflegt samkomulag um betri mætingar og verkefnaskil.
- Brjóti nemandinn samkomulagið verður honum ekki boðin áframhaldandi skólavist á næstu önn.
- Ef nemendur eru ósáttir við meðferð sinna mála geta þeir vísað málinu til skólaráðs og sótt skólann þar til niðurstaða skólaráðs er fengin.
- Skólaráð getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu frá reglum þessum.
Umgengnisreglur
Síðast breytt: 18. ágúst 2009
- Ætlast er til að nemendur sýni góða umgengni í skólanum og á lóð hans.
- Nemendur gæti þess vandlega að farsímar þeirra valdi ekki truflun á vinnufriði í skólanum.
- Matar og drykkjar má neyta í kaffistofu nemenda á 3. hæð og í stofunum þar í kring á matmálstímum. Einnig í sal á 1. hæð á matmálstímum.
- Auglýsingar varðandi skólahald og félagslíf nemenda eru leyfðar á veggjum skólans. Utanaðkomandi sem vilja auglýsa innan veggja skólans eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu.
- Spjöll sem nemendur kunna að vinna á húsnæði skólans eða öðrum eigum hans ber þeim að bæta að fullu.
- Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum og á samkomum og ferðalögum á vegum hans.
- Reykingar og önnur tóbaksnotkun er bönnuð í skólanum og á lóð hans.
- Ítrekuð brot á reglum þessum geta leitt til brottrekstrar úr skóla.
Tölvureglur
Síðast breytt: 18. ágúst 2009
Nemendur fá aðgang að internetinu og þráðlaust tölvunet er til staðar í skólanum. Skólinn er tengdur FS-neti sem er háhraðanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar á Íslandi. Nemendum er bent á að lesa reglur FS-nets á http://www.fsnet.is undir Reglur FSnets. Til viðbótar setur skólinn eftirfarandi reglur um notkun netsins og þær gilda hvort sem notaðar eru eigin fartölvur nemenda eða tölvur skólans:
- Tölvubúnaður Framhaldsskólans í Mosfellsbæ er eign skólans og hann á aðeins að nota í viðfangsefni sem tengjast skólastarfinu svo sem við kennslu, kynningar eða á annan hátt er samræmist markmiðum skólans.
- Notendanafni og lykilorði notenda er óheimilt að deila með öðrum og nemandi má einungis nota sitt notendanafn á tölvuneti skólans. Handhafi notendanafns er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
- Nemanda er óheimilt að setja upp hugbúnað á tölvur skólans eða á neinn hátt breyta uppsetningu tölvubúnaðar.
- Nemendum er óheimilt að afrita hugbúnað, tónlist, kvikmyndir eða önnur gögn sem eru vernduð höfundarrétti nema ef fyrir liggur leyfi eigenda.
- Nemendum er bannað að senda óviðeigandi efni með tölvum skólans hvort heldur er í tölvupósti, á vefsíður eða með öðrum verkfærum. Hér er átt við fjölsendingar (keðjubréf, ruslpóst), ósiðlegt efni, og annað sem getur verið særandi eða meiðandi.
- Nemendum er óheimilt að fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða að afrita nokkur gögn sem eru á tölvuneti skólans, nema eigin gögn.
- Óheimilt er að nota net skólans til að reyna að komast ólöglega inn á netsvæði eða tölvur annarra.
- Óheimilt er að vera með matvæli í nálægð við tölvubúnað skólans.
Ítrekuð eða alvarleg brot á reglum þessum geta leitt til brottvísunar og brot sem varða við landslög verða kærð til lögreglu.
