Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Sjálfsmatsskýrslur

Sjálfsmatsskýrsla 2010-2011

 

Efnisyfirlit

1       Inngangur

1.1         Einkenni stofnunar og staða í samfélaginu

1.2         Almenn stefna og markmið

2       Starfsemi skólans

2.1 Nám og kennsla

2.2 Námsmat

2.3 Nemendur

2.4 Starfsfólk og starfsmannastjórnun

2.5 Aðbúnaður

3. Sérstök áherslusvið skólans

4. Samantekt og mat á árangri skólastarfs.

 

1           Inngangur

1.1         Einkenni stofnunar og staða í samfélaginu

Skólinn er áfangaskóli og býður nám til stúdentsprófs og annarra lokaprófa skv. lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008. Skólinn er í samstarfi við menntamálaráðuneytið og Kvennaskólann í Reykjavík um innleiðingu nýrra laga um framhaldsskóla og tekur allt starf hans og uppbygging mið af þeim. Í því felst m.a. uppbygging nýrra námsbrauta sem byggja á hugmyndum um hæfnimiðað nám sem flokkast á tiltekin þrep og samningu nýrra áfangalýsinga í öllum áföngum. Einkenni skólastarfsins eru fjölbreyttar, verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarmat. Áhersla er á að bjóða nemendum metnaðarfullt nám við hæfi hvers og eins og stuðlað er að öflugu félagslífi nemenda. Skólinn kennir sig auk þess við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi. Þar er átt jafnt við auðlindir í náttúrunni sem og mannauð með áherslu á lýðheilsu og menningarlegar auðlindir og endurspeglar skólastarfið þær áherslur. Enn fremur er umhverfi skólans mikilvægur þáttur í skólastarfinu þar sem hugað er m.a. að náttúrufræði umhverfisins, virðingu fyrir því og hvernig njóta má þess og nýta á skynsamlegan hátt.

1.2         Almenn stefna og markmið

Stefna skólans gerir ráð fyrir að kennsluhættir einkennist af því að nemendur verði virkir þátttakendur í eigin námi og öðlist þannig sjálfstæði og frumkvæði. Til að ná þessu fram eru notaðar fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir þar sem hugmyndafræðin gengur út á að nemandinn tileinki sér námsefnið í gegnum verkefni sem hann vinnur og umræður sem hann tekur þátt í. Stundaskrá nemenda er sveigjanleg að því marki að daglega eru verkefnatímar þar sem nemandinn velur sér viðfangsefni. Námsmat byggir á hugmyndum um leiðsagnarmat sem m.a. fela í sér að engin lokapróf eru haldin við skólann.

Markmið skólans er að stuðla að alhliða þroska nemenda svo þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Það gerir skólinn m.a. með því að efla siðferðis- og sjálfsvitund nemenda, samfélagslega ábyrgð þeirra, efla færni nemenda í íslensku máli, efla sjálfsaga og sjálfstæð vinnubrögð þeirra, kenna nemendum að njóta menningarlegra verðmæta, búa þá undir störf og frekara nám.

Stefna skólans og markmið styðja við þann einhug sem ríkir meðal starfsfólks sem hefur einsett sér að skapa hvetjandi námsumhverfi sem einkennist af jákvæðu viðhorfi og gagnkvæmri virðingu. Jafnframt er lögð áhersla á að vera í góðum tengslum við umhverfið, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ.

2           Starfsemi skólans

2.1         Nám og kennsla


Á skólaárinu 2010-2011 voru framkvæmdar kennslukannanir í öllum áföngum hjá öllum kennurum skólans, helmingur kennara á hvorri önn. Kannanirnar voru í formi matsfunda þar sem stjórnendur hitta nemendahópa og gefa þeim tækifæri til að tjá sig um jákvæðar og neikvæðar hliðar kennslunnar. Niðurstöður voru skráðar og hver kennari fékk niðurstöðurnar afhentar á fundi með stjórnendum.

Niðurstöðurnar sýndu að nemendur skólans eru almennt ánægðir með kennsluhætti og af því má draga þá ályktun að kennurum tekst vel upp með að starfa samkvæmt hugmyndafræði skólans. Matsfundirnir gefa ítarlegar upplýsingar um skólastarfið og þar sem matið fer fram í samræðuformi eru stjórnendur í nánari tengslum við nemendur. Skoðanir á skólastarfinu verða skýrari og auðveldara er að bregast við því sem nemendur benda á heldur en þegar lagðir eru fyrir rafrænir spurningalistar, bæði hvað varðar þátttöku og gagnsemi niðurstaðna.

Gagnlegar ábendingar komu fram og voru þær ræddar einslega við hvern kennara fyrir sig og leiðir til úrbóta ákveðnar í sameiningu. Markmið sjálfsmatshópsins er að haldið verði áfram með þetta form á kennslukönnunum og það þróað enn frekar.

2.2 Námsmat

Námsmat í skólanum tekur mið af hugmyndum um leiðsagnarmat, nemendur skila verkefnum og taka stuttar kannanir jafnt og þétt yfir alla önnina. Námsmatið er í formi umsagna frá kennurum og eru leiðbeinandi fyrir nemendur auk þess sem það gefur þeim tækifæri til að bæta árangur sinn. Í október og í mars fá nemendur miðannarmat þar sem gefnar eru einkunnir í bókstöfunum A, B, C og D. Í lok annar fá nemendur einkunnir í heilum tölum.

2.3 Nemendur

Á báðum önnum voru lagðar fyrir viðhorfskannanir hjá nemendum. Í þeim var spurt um upplifun nemenda af kennslunni, kennsluaðferðum, námsmati, vinnuálagi, líðan í skólanum, félagslífi og hvernig þjónusta sem í boði er nýtist þeim. Þegar niðurstöður liggja fyrir var haldinn húsfundur með nemendum og starfsfólki þar sem niðurstöðurnar voru kynntar og ræddar. Nemendur óskuðu eftir því að fá lengra hádegishlé og töldu að verkefnatímar myndu nýtast betur ef þeir væru að loknu hádegishléi. Annars voru nemendur almennt ánægðir og leið vel í skólanum. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að of margir nemendur nýta ekki vefpóstinn sem skyldi og of stór hluti nemenda segist stundum eða aldrei lesa umsagnir frá kennara.

Mikilvægt er að allir kennarar fari yfir það reglulega með sínum nemendum hvernig á að nota vefpóstinn og gefi nemendum kost á að lesa umsagnir með verkefnum í kennslustundum. Hádegishlé var lengt á vorönn 2011 og verkefnatímar færðir til í töflu. Markmiðið er að allir nemendur skoði vefpóstinn sinn a.m.k. einu sinni á dag til að fylgjast með mikilvægum upplýsingum um skólastarfið. Auk þess að þeir lesi umsagnir frá kennurum og nýti þær til að bæta árangur sinn í náminu.

2.4 Starfsfólk og starfsmannastjórnun

Starfsmannastjórnun er í höndum skólameistara. Vikulega eru haldnir kennararfundir þar sem allir starfsmenn fá tækifæri til að tjá sig um kennsluna og líðan í starfi. Allir kennarar fá persónulegt viðtal við skólameistara í kjölfar matsfunda (sjá 2.1).

Enn sem komið er hefur ekki farið fram formleg könnun á því hvernig starfsmenn upplifa starfsmannasjórnunina í skólanum.

 Mikilvægt er að gera reglulega formlega könnun á líðan starfsfólks í vinnunni og er markmiðið að leggja starfsánægjukönnun fyrir kennara skólans.

2.5 Aðbúnaður

Skólinn er í bráðabirgðahúsnæði og vinnuaðstaða nemenda og kennara er ófullnægjandi. Þess vegna er óraunhæft að meta aðbúnað í skólanum þar til ný bygging verður tekin í notkun.

3. Sérstök áherslusvið skólans

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ starfar skv. lögum um framhaldsskóla en þar er m.a. kveðið á um hvernig innra mati skuli háttað í framhaldsskólum landsins.  Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í framhaldsskólum er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun. Einnig er markmiðið að tryggja að starfsemi skólans sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár framhaldsskóla, að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum. Jafnframt að tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum (40. gr.). Kveðið er á um að hver framhaldsskóli meti með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs á grundvelli 40. gr. með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á og birti opinberlega upplýsingar um innra mat sitt, tengsl þess við skólanámskrá og áætlanir um umbætur (41. gr.). Tilgangur þessarar skýrslu er að halda til haga á einum stað öllum gögnum er varða innra mat skólans eins og lög gera ráð fyrir, sjá nánar í kafla 1.1. 

4. Samantekt og mat á árangri skólastarfs

Í sjálfsmatshópi FMOS eru skólameistari, aðstoðarskólameistari, námsráðgjafi og tveir kennarar. Hópurinn hittist að jafnaði einu sinni í viku og ber hópurinn ábyrgð á að sjálfsmatsáætlun sé gerð og henni fylgt eftir. Ekki náðust öll markmið sjálfsmatsáætlunar á vorönn 2011, ekki vannst tími til að leggja spurningar fyrir rýnihóp nemenda og verður það gert á vorönn 2012. Niðurstöður annarra kannana voru gagnlegar fyrir skólastarfið í heild og höfðu í för með sér eftirfarandi umbætur á skólastarfinu: Hádegishlé var lengt um 10 mínútur og verkefnatímarnir færðir til í töflu og eru núna að loknu hádegishléi. Nemendur óskuðu eftir þessum breytingum á húsfundi sem haldinn var þegar niðurstöður viðhorfskönnunar lágu fyrir. Á haustönn 2010 var formi kennslukönnunar breytt þannig að haldnir voru  matsfundir með nemendum (sjá kafla 2.1.) og leiddu niðurstöðurnar til nokkurra úrbóta. Matsfundir voru haldnir á báðum önnum og náðu til allra kennara og áfanga skólans. Sem dæmi um þær úrbætur sem ræddar voru á fundunum og komu til framkvæmda er að skipulagi kennslunnar var í sumum tilfellum breytt og reglur um verkefnaskil samræmdar. Einnig var framkvæmd námsmats og val á námsefni umræðuefni á nokkrum fundum stjórnenda og kennara. Það er trú okkar að með þessum hætti skili úrbæturnar sér hratt og vel inn í kennslustundir.

 

Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari

Guðrún Guðjónsdóttir, aðstoðarskólameistari

Hlín Rafnsdóttir, félagsfræðikennari

Inga Þóra Ingadóttir, náms- og starfsráðgjafi

Sverrir Árnason, íslenskukennari


Senda


Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica