Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Nemendafélag

Nemendafélag

Í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ er starfrækt nemendafélag (NFFMOS) en umsjón þess er í höndum nemendaráðs. Á vorönn eru kosnir fulltrúar í ráðið til eins árs í senn og hafa allir nemendur skólans jöfn tækifæri til að bjóða sig fram. Markmið nemendaráðs er að bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta viðburði og stuðla að góðum anda í skólanum. Nemendur skólans greiða félagsgjöld í NFFMOS samhliða skráningargjöldum sínum í skólann á hverri önn, að sjálfsögðu er þátttaka valfrjáls en vart þarf að taka það fram að ávinningurinn af því að vera í NFFMOS er ótvíræður. 


Það eru margir kostir við að vera með öflugt nemendafélag. Auk þess að halda uppi félagslífi stendur NFFMOS vörð um nemendur í skólanum og er t.d. aðili að SÍF (Samband íslenskra framhaldsskólanema).

 

Að vera félagi í NFFMOS gefur þér:
Afslætti á viðburði hjá NFFMOS - sem dæmi er árshátíð (stærsti viðburður ársins) að stórum hluta niðurgreidd

Nemendaskírteni: Sérstakir afslættir og tilboð hjá fyrirtækjum eru veittir gegn framvísun skírtenis. Um er að ræða almenn tilboð til framhaldsskólanema sem og sérstök tilboð til félaga í NFFMOS.

Möguleika á að bjóða þig fram í nemendaráð.


Hægt er að segja sig úr nemendafélaginu í eina viku eftir fyrsta skóladag hverrar annar og er það gert á skrifstofu skólans.

Stjórn NFFMOS: Í henni eru formaður, varaformaður (ritari) og gjaldkeri ásamt nýnemafulltrúa. Einnig eru í stjórninni formenn þeirra þriggja nefnda sem starfa innan NFFMOS. Stjórnin hefur yfirumsjón með starfsemi nemendafélagsins og sér um tengsl félagsins við skólann annars vegar og við nemendafélög í öðrum skólum hins vegar. Meðal verkefna sem stjórnin sér um innan skólans er útgáfa á nemenda skírtenum.

Skemmtinefnd: Í henni eru formaður sem starfar sem fulltrúi nefndarinnar í stjórn NFFMOS og aðrir meðlimir. Markmið skemmtinefndar er að skapa flott félagslíf í FMOS. Meðal verkefna er að halda böll, árshátíð, skemmtikvöld, söngkeppni og ýmsar uppákomur.

Fjölmiðlanefnd: Í henni eru formaður sem starfar sem fulltrúi nefndarinnar í stjórn NFFMOS og aðrir meðlimir. Markmið fjölmiðlanefndar er að birta upplýsingar og fréttir um starf NFFMOS. Meðal verkefna eru að sjá um vefsíðu nemendafélagsins, taka myndir á viðburðum, búa til auglýsingar o.fl.

Íþróttanefnd: Í henni eru formaður sem starfar sem fulltrúi nefndarinnar í stjórn NFFMOS og aðrir meðlimir. Markmið íþróttanefndar er að sjá um íþróttatengda viðburði í FMOS. Meðal verkefna er að skrá þátttöku og auglýsa íþróttakeppnir milli framhaldsskóla ásamt því að halda íþróttaviðburði innan skólans.

Stjórn NFFMOS:

Margrét Saga Gunnarsdóttir, formaður
Stefán Valgeir Guðjónsson, gjaldkeri
Sigríður Lóa Björnsdóttir, varaformaður og ritari
Svandís Erna Þórðardóttir, fulltrúi nýnema

Skemmtinefnd

Baldur Þór Bjarnason, formaður
Anita Steinunn Dagnýjardóttir
Dagmey Ellen E. Arnarsdóttir
Helga Rúnarsdóttir
Sunna Mary Valsdóttir

Fjölmiðlanefnd

Helgi Ingvarsson, formaður
Lilja Þorvarðardóttir
Sigmundur Freyr Sigmundsson

 Íþróttanefnd

Sesselja Líf Valgeirsdóttir, formaður
Hafþór Daði Halldórsson
Margrét Sæunn Axelsdóttir
Ragnhildur Ioana Guðmundsdóttir
 

 Vefur nemendafélagsins er www.nffmos.is


Senda


Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica