Náttúruvísindabraut
Síðast breytt: 24. júní 2011
Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Náttúruvísindabraut er 200 feiningar* og meðalnámstími er 6-7 annir.
Á náttúruvísindabraut er áhersla á kjarnagreinar, auk sérgreina brautarinnar í stærðfræði og raungreinum, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og hún er góður undirbúningur fyrir frekara nám m.a. í tæknigreinum, náttúruvísindum, stærðfræði og heilbrigðisvísindum.
Lokamarkmið náttúruvísindabrautar eru:
Að nemendur
- hafi góða þekkingu á sviði stærðfræði og raunvísinda
- séu færir um að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna,öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- geti fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- hafi öðlast meðvitund gagnvart umhverfi sínu, lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
- geti nýtt kunnáttu í náttúru- og raunvísindum ásamt skapandi hugsun í mögulegri framtíðarþróun
- hafi hæfni til að lesa fræðitexta á ensku
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám, einkum í tæknigreinum, náttúru- og raunvísindum.
| Kjarnagreinar | Fein. | |||||
| Íslenska | ÍSL2A05 | ÍSL2B05 | ÍSL3A05 | ÍSL3B05 | 20 | |
| Stærðfræði | STÆ2A05 | STÆ2B05 | STÆ3A05 | STÆ3B05 | STÆ3C05 | 25 |
| Enska | ENS2A05 | ENS2B05 | ENS3A05 | ENS3B05 | 20 | |
| Danska | DAN2A05 | DAN2B05 | 10 | |||
| Spænska | SPÆ1A05 | SPÆ1B05 | SPÆ1C05 | 15 | ||
| Ég, skólinn og samfélagið | ÉSS1A03 | ÉSS1B02 | 5 | |||
| Saga | SAG2A05 | 5 | ||||
| Lýðheilsa og íþróttir | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | 5 |
| Samtals: | 105 | |||||
| Raungreinar: Í fremsta dálki eru skylduáfangar (30 fein.). Nemendur velja til viðbótar 30 fein af öðrum raungreinaáföngum. Tvær námsgreinar þurfa að að ná upp á 3. þrep. | ||||||
| Náttúruvísindi | NÁT1A05 | |||||
| Eðlisfræði | EÐL2A05 | EÐL3A05 | EÐL3B05 | |||
| Efnafræði | EFN2A05 | EFN2B05 | EFN3A05 | EFN3B05 | ||
| Jarðfræði | JAR2A05 | JAR2B05 | ||||
| Líffræði | LÍF2A05 | LÍF2B05 | LÍF3A05 | LÍF3B05 | ||
| Umhverfisfræði | UMF1A05 | UMF2A05 | UMF3A05 | |||
|
Samtals í raungreinum: |
60 | |||||
|
Kjarni á náttúruvísindabraut samtals: |
165 | |||||
| Kjarni | 165 | |||||
| Val | 35 | |||||
| Samtals | 200 | |||||
Náttúruvísindabraut er byggð upp af kjarnaáföngum og valáföngum. Kjarnaáfangarnir eru samtals 160 fein. og eru skylduáfangar fyrir nemendur brautarinnar. Hluti af skylduáföngunum eru í einkennisgreinum brautarinnar, raungreinum, og af þeim lista taka nemendur 60 fein eftir áhugasviðum. Nemendur þurfa einnig að ljúka 40 feiningum í vali og geta ráðið úr hvaða námsgreinum þessar einingar koma. Einu skilyrðin sem þarf að huga að er að ákveðið hlutfall feininga þarf að vera á hverju þrepi: 1. þrep: 55 fein. hámark og 3. þrep: 60 fein. lágmark.
*Framhaldsskólaeiningar (ný skilgreining á einingum samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
