Sérnámsbraut
Síðast breytt: 3. febrúar 2012
Námsbraut fyrir nemendur sem notið hafa verulegrar sérkennslu í grunnskóla og þurfa einstaklingsmiðað nám. Brautinni lýkur með útskriftarskírteini af sérnámsbraut. Meðalnámstími er 6-7 annir.
Nemendur á sérnámsbraut fá aðlagað einstaklingsmiðað námstilboð, þar sem kennslan er byggð á námsáætlun fyrir nemendahóp eða einstakling. Áætlanir eru unnar út frá markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla, ásamt bakgrunnsupplýsingum um þarfir nemenda og mati á stöðu í námi og þroska.
Nemendur á sérnámsbraut geta jafnframt sótt nám í áföngum á öðrum brautum með eða án stuðnings, miðað við þekkingu, færni og hæfni í námsefni áfanganna.
Á sérnámsbraut, eins og á öðrum brautum skólans, einkennast kennsluhættir af því að nemendur verði virkir þátttakendur í eigin námi og öðlist þannig sjálfstæði og frumkvæði. Til að ná þessu fram eru notaðar fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarmat. Hugmyndafræðin gengur út á að nemandinn tileinki sér námsefnið í gegnum verkefni sem hann vinnur eða umræður sem hann tekur þátt í og að leiðsagnarmatið leiði nemandann áfram og ýti undir aukinn árangur.
Almenn markmið sérnámsbrautar eru:
- Að stuðla að alhliða þroska nemenda og efla færni þeirra í félagslegum samskiptum
- Að örva með leiðsagnarmati aukið sjálfstæði og sjálfstraust til daglegra athafna
- Að veita nemendum menntun sem nýtist þeim í daglegu starfi og tómstundum
- Að nemendur eigi möguleika á að sækja almenna áfanga miðað við hæfni og getu
- Að nemendur fái tækifæri til að kynnast atvinnulífi með vettvangsferðum (fyrirtækjaheimsóknum) og starfskynningum
- Að nemendur fái tækifæri til að tengja saman nám og einföld störf í skóla og á almennum eða vernduðum vinnustað
| Kjarnagreinar | Fein. | |||||||
| Íslenska | ÍSLS105 | ÍSLS205 | ÍSLS305 | ÍSLS405 | ÍSLS505 | ÍSLS605 | ÍSLS705 | 35 |
| Stærðfræði | STÆS103 | STÆS203 | STÆS303 | STÆS403 | STÆS503 | STÆS603 | STÆS703 | 21 |
| Enska | ENSS103 | ENSS203 | ENSS303 | ENSS403 | ENSS503 | ENSS603 | ENSS703 | 21 |
| Þema/lífsleikni | LKNS105 | LKNS205 | LKNS305 | LKNS405 | LKNS505 | LKNS605 | LKNS705 | 35 |
| 112 | ||||||||
| Verkgreinar | ||||||||
| Vettvangsferðir | VENS103 | VENS203 | VENS303 | 9 | ||||
| Lífsstíll og næring | LSNS103 | LSNS203 | LSNS303 | LSNS403 | LSNS503 | LSNS603 | LSNS703 | 21 |
| Starfsþjálfun | STAS105 | STAS205 | STAS305 | STAS405 | 20 | |||
| Lýðheilsa og íþróttir | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | LÝÐ1A01 | 5 | ||
| 55 | ||||||||
| Samtals: | 167 |
| Dæmi um valgreinar - nemendur velja að minnsta kosti 33 einingar í val |
| Myndlist, hönnun, textíll, hestamennska, ég, skólinn og samfélagið, tónlist, leiklist, skyndihjálp, stuttmyndagerð |
|
Sérnámsbraut samtals: 200 fein. |
Forsenda fyrir inntöku nemenda á sérnámsbraut er að greining sérfræðinga fylgi umsókn.
