Lokamarkmið námsbrauta
Lokamarkmið námsbrauta Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Hér fyrir neðan eru almenn lokamarkmið námsbrauta skólans. Þessi lokamarkmið gilda fyrir allar námsbrautir, en lokamarkmið hverrar námsbrautar fyrir sig eru birt í samhengi við brautirnar.
Almenn lokamarkmið námsbrauta Framhaldsskólans í Mosfellsbæ eru að nemendur:
- séu undirbúnir fyrir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi
- búi yfir félagslegri og borgaralegri hæfni, sýni frumkvæði, ábyrgð, víðsýni og umburðarlyndi, hafi siðferðisvitund og sjálfstraust
- séu meðvitaðir um mikilvægi umhverfisins í víðum skilningi, s.s. náttúrufræði umhverfisins, virðingu fyrir umhverfinu og hvernig njóta má umhverfisins og nýta á skynsamlegan hátt
- tileinki sér lífsvenjur sem eru uppbyggilegar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði
- verði sjálfstæðir og taki ábyrgð á eigin námi
- búi yfir frumkvæði og skapandi hugsun
- geta beitt gagnrýninni hugsun
- geti beitt vísindalegum vinnubrögðum og notað þekkingu sína og færni við lausn fjölbreyttra verkefna
- séu færir um að leita lausna í samvinnu við aðra
- hafi gott vald á upplýsingatækni
- hafi leikni í samskiptum og tjáningu á íslensku sem móðurmáli
- hafi leikni í samskiptum og tjáningu á erlendum tungumálum, sérstaklega ensku
- kunni að njóta menningarlegra verðmæta
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám
