Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Íþróttakennsla

Íþróttakennsla - LÝÐ1A02

Síðast breytt:  13. febrúar 2012.

 

LÝÐ – HREYFING

Til þess að fá ná áfanganum þurfa nemendur:

a) að hafa 6 eða færri forföll.  Leyfi og veikindi, gleymd íþróttaföt og/eða orfa á flokkast allt undir forföll.

b) að taka stöðupróf við upphaf og lok annar (þolpróf, kviðæfingar, armbeygjur og liðleikapróf).

c) að vera virk og jákvæð í tímum.

 Námsmat:  Staðið / fallið

Aukatímar:

a) Vinna upp mætingu
b ) Hitta nemendur úr öðrum hópum og  t.d spila körfubolta, fótbolta, fara í ræktina, út að hlaupa ...

c) Leyfilegt að koma í tíma hjá öðrum hópum – bara að muna að láta merkja við ykkur – það er á ykkar ábyrgð


 
Mánudagar Þriðjudagar Miðvikudagar Fimmtudagar Föstudagar
08:30-09:20       LÝÐ 2  
09:25-10:15 LÝÐ 1 LÝÐ 5   LÝÐ 3  
10:25-11:15   LÝÐ 2      
11:20-12:10 LÝÐ 5 LÝÐ 3 JÓGA LÝÐ 1 JÓGA
12:10-12:40 M A T U R
12:40-13:20          
13:25-14:15 LÝÐ 4     LÝÐ 4  


Hvar fer kennsla fram?
- Íþróttahúsinu við Varmá
- í ELDINGU LÍKAMSRÆKT
- Speglasalnum
- Úti, gervigras, 2km og 5km göngu/hlaupahringur, körfuboltavellir

Hvernig eru íþróttir í FMOS?
Áfanginn er einungis verklegur.  Kennst er tvisvar sinnum í viku og 50 mínútur í senn. 

Tímarnir vorið 2012:
- ræktin:
a) FMOS prógröm
b) prógram dagsins; fjölbreytt þjálfun í tækjasal eða speglasal
c) eigin prógröm; nemendur þurfa að koma með prógramið útprentað
d) útihlaup/ganga/hjólatúr í a.m.k 20-30 mín
e) Salur – er í skoðun

Allar persónulegar þarfir eru teknar til greina. 

Sturta og fatnaður:
- allir nemendur eiga að fara í sturtu eftir tíma
- mæta í fatnaði sem auðvelt er að hreyfa sig í (ekki leyfilegt að vera í gallabuxum eða bolum sem ekki er hægt að hlaupa/hoppa í)
- mæta í skóm (ekki er leyfilegt að vera á sokkunum)
- við leysum öll sturtumál ... látið mig vita og við leysum það

Algengar spurningar:
Spurning: Ég er með kort í annari líkamsrækt. Má ég sleppa við íþróttir og æfa þar?
Svar: Nei ! það er ekki í boði, en það mega allir æfa eftir sínum prógrömum hjá okkur.

Spurning: Ég er búin/n að vera með vottorð í íþróttum ... get ég fengið að sleppa við íþróttir?
Svar: Nei ! það eru engin vottorð tekin í FMOS, en við reynum eins og við getum að koma til móts við þarfir og getu hvers og eins. 

Spurning: Ég er að æfa afreksíþróttir. Get ég fengið að sleppa við íþróttir?
Svar: Við metum það í hvert og eitt skipti.  Það eru gerðar kröfur  um að þið séuð að æfa með árangur í huga, þ.e eruð með 90% mætingu, hjá íþróttafélagi á vegum ÍSÍ og hjá viðurkenndum þjálfara sem skrifar uppá öll þessi atriði.

Sendið tölvupóst á halla@fmos.is ef þið hafið einhverjar frekari spurningar.

Senda


Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica