Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf FMOS

 

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er fyrst og fremst að vera málsvari og trúnaðarmaður nemenda innan skólans og standa vörð um velferð þeirra.

Þjónustan er fyrir ALLA nemendur skólans og miðar að því að vera fyrirbyggjandi, græðandi, fræðandi og þroskandi.

Ráðgjafinn veitir nemendum aðstoð og stuðning í námi s.s. veitir upplýsingar og fræðslu um nám og störf, sinnir kennslu um hagnýtar námsaðferðir, aðstoðar við að finna úrræði vegna námserfiðleika, hjálpar nemendum að átta sig á áhugasviðum sínum, styrkleikum og námsstíl. Ráðgjöfin miðar að því að efla færni nemenda til að finna sínar eigin leiðir og lausnir á þeim vanda sem þeir standa frammi fyrir hverju sinni.

Einnig veitir náms- og starfsráðgjafi skólans nemendum og öðrum sem til hans leita upplýsingar og fræðslu um starfshætti skólans, skólareglur, kennsluhætti og námsmat.  

Náms- og starfsráðgjafi skólans er bundinn trúnaði við þá sem til hans leita og starfar skv. siðareglum fagstéttarinnar þar sem áherslan er á manngildi og virðingu, sjálfræði, heill og velferð ráðþega.

Náms- og starfsráðgjafi Framhaldsskólans í Mosfellsbæ er Inga Þóra Ingadóttir og er skrifstofa hennar staðsett á 3. hæð.

Þú getur bókað tíma með því að líta við á skrifstofunni á 3. hæð, hringja í 412-8505 eða senda tölvupóst á ingathora@fmos.is 

Velkomin/n!

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica